Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Páll Vilhjálmsson
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Nemi

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tilvitnun vikunnar

Það er svo magnað þetta jarðlífi...annar með drullu og hinn með harðlífi!!

Könnun

Hver er mesti lygarinn?

Gagnasafn

Leit

Engin fyrirsögn

16. desember 2008 klukkan 17:16
Ég er...

...sonur, bróðir, vinur, besti vinur, kærasti, tengdasonur, barnabarn, barnabarnabarn, nemi, ML-ingur, austfirðingur, fótboltaáhugamaður, tónlistarmaður, bloggari, samstarfsmaður, frábær, skemmtilegur, fyndinn, dökkhærður, gleraugnaglámur, töff, íbúðareigandi, rómantískur, atorkusamur, snjall, sniðugur, myndarlegur, góður kokkur, félagslyndur, sjálfstæður, merkilegur, yndæll, ljúfur, hrjúfur, fljótfær, skynsamur, óskynsamur, glataður, leiðinlegur, skuldari, kaldur, latur, heimskur, ljótur, vondur, einfari, ósjálfstæður, hund-ómerkilegur og væmið fífl.

En fyrir utan það er ég þokkalegur gaur!!

P.
Páll Vilhjálmsson

Þá hefjast skriftir að nýju!!

15. desember 2008 klukkan 20:56
Góða kvöldið!!

Ég hef ákveðið enn einu sinni að reyna að blogga. Mér finnst það gaman þegar ég nenni því. Núna er líka þannig tími...ég er nefnilega EKKI í prófum aldrei þessu vant á þessum á tíma ársins.

Síðustu átta vikurnar er ég búinn að vera í verknámi í Sjúkraþjálfarnum Hafnarfirði. Það er búið að vera drullugott og hef ég haft virkilega gott af þeirr dvöl!!

Nóg um það. Jólin að koma og fer ég austur á fimmtudaginn sem er 18.des. Við Arna ætlum að keyra og einhvern vantar far austur er hann eða hún hjartanlega velkomin að slást í för með okkur systkinum. Nú er árið 2008 senn á enda og ósjálfrátt fer maður að hugsa um öll þau afrek og þrekvirki sem maður hefur framkvæmt og allt það sem mann hugsanlega langar að gera á næsta ári. Árið 2008 var svolítið skrýtið fyrir mig tilfinningalega. Ég missti ömmu mína eftir harða baráttu við heilabilun og veikindi, langömmu mína og Bigga mág hennar mömmu af slysförum á mjög stuttum tíma í vor. Ekkert skemmtilegt að fara ferð eftir ferð austur á land til þess eins að fylgja ástvinum til grafar - blessuð sé minning þeirra!

En þó hörmungar hafi hrellt fjölskylduna mína erum við sterk heild og reisum þétta múra í kring um hvort annað og hlúum að hvort öðru. Það er á svona stundum sem maður sér hvað það er mikilvægt að eiga góða að. Eiga fólk að sem er tilbúið að standa við bakið á þér og við hliðina á þér og hjálpa þér að læra að lifa með því þegar risastór göt myndast í þá einingu sem fjölskyldan er. Öll fæðumst við til að deyja og slysin gera ekki boð á undan sér, þannig er það nú!

En þó hugsanir eins og ,,hvað ef?" vafri um hugann í tíma og ótíma eigum við fullt að fallegum minningum til að hugga okkur við og notum þær óspart þegar við komum saman. Það er mjög gott að geta minnst látinna ástvina með góðum minningum. Þær eru milljón og trilljón!!

Það hefur líka margt gott hent mig á þessu ári. Stórfjölskyldan stækkar og nýir meðlimir komið í heiminn, ég kláraði þriðja árið í sjúkraþjálfuninni og er að ljúka sjöundu önninni minni og þá er bara ein eftir. Hugsaðu þér!!

Árið 2009 verður heldur betur viðburðaríkt!! Útskrifast úr HÍ, fer að vinna sem sjúkraþjálfari, jubilering á Laugarvatni í tilefni 5 ára stúdentaafmælis, get ekki beðið eftir Bræðslunni og versló (ætla mér að vera í eyjum í þetta sinn) og þar að auki að upplifa nýja hluti með minni heittelskuðu og kynnast hennar fjöslkyldu!! Magnað ár í vændum!!

Ég nenni ekki að eyða orðum í kreppuna!! Enginn skilur neitt - af hverju hún skall á, hvað er best að gera, hver segir satt og hver lýgur, hvað bensínið kostar á morgun, hvað verður næsta afborgun að íbúðinni há, hvenær endar þetta, held ég vinnunni, á ég að splæsa í ost eða hvað????

Jæja...þetta var stutt ágrip af árinu 2008 og því sem koma skal 2009. Hér verður bloggað um daginn og veginn, það sem ég hugsa og pæli í, gamansögur og alvöru mál sem brenna á mér!!

Stay tuned,
P.
Páll Vilhjálmsson